Íslandsbanki hf. og SAT eignarhaldsfélag hf. fá leyfi til að fara með virkan eignarhlut í SA tryggingum hf., þ.e. Sjóvá, að því er fram kemur í tilkynningu Fjármálaeftirlitsins (FME). Eins og áður hefur komið fram hér á AMX er áformað að heiti hins nýja vátryggingafélags verði Sjóvá - Almennar tryggingar hf. og mun félagið starfa undir því nafni.
Í tilkynningu FME frá því í dag segir:
„Fjármálaeftirlitinu barst umsókn frá Íslandsbanka hf. og SAT eignarhaldsfélagi hf. um heimild til að fara með virkan eignarhlut í SA tryggingum hf. Hluthafar SA trygginga hf. eru tveir, Íslandsbanki hf. með 9,3% hlutafjár og SAT eignarhaldsfélag hf. með jafngildi 90,7% hlutafjár. SAT eignarhaldsfélag hf. er að fullu í eigu Glitnis banka hf.
Fjármálaeftirlitið samþykkti umsóknina með bréfi, dags. 1. október sl., og veitti umsækjendum skilyrta heimild, skv. 39. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60/1994, til að fara með virkan eignarhlut í SA tryggingum hf.“