Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Danska FME

Danir sem skotið hafa eignum sínum undan til erlendra skattaskjóla sleppa ekki lengur.

Dönsk skattayfirvöld herða nú leit sína að þeim sem skotið hafa skattskyldum eignum sínum undan í erlend skattaskjól. Áður var nánast ómögulegt fyrir skattayfirvöld að nálgast upplýsingar um slík undanskot en með aukinni erlendri samvinnu hafa opnast möguleikar á að ná til þessa fólks, að því er Børsen greinir frá og vitnar í Søndagsavisen.

Með rafrænni leit hefur dönskum skattayfirvöldum tekist að ná til um 400 Dana sem skotið hafa fé sínu undan með þessum hætti. Þeirra bíða nú endurgreiðslur og þungar sektir.

Til þess að ná til þeirra sem komið hafa fé sínu í skattaskjól erlendis hafa dönsk skattayfirvöld rannsakað bankayfirfærstur undanfarinna fimm ára til um 50 landa sem OECD skilgreinir sem alþjóðleg skattaskjól.

Tekið er fram að ekki sé ólöglegt að eiga bankareikninga erlendis en búi menn í Danmörku beri þeim að gera grein fyrir eignum sínum og greiða skatta af vaxtatekjum.