Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Staða Finns....

04.08 2009 - 9 ummæli »

Ósigur Kaupþings

Orðið á götunni er að staða Finns Sveinbjörnssonar bankastjóra Kaupþings sé mjög veik eftir að bankinn neyddist til þess seint í gærkvöldi að falla frá lögbanni sínu á fréttaflutning af lánastarfsemi bankans fyrir hrun. Finnur beri meginábyrgð á lögbanninu og þeim mikla skaða sem það hafi valdið bankanum. Hann hljóti að súpa seyðið af því.

Orðið á götunni er að tvær ástæður hafi verið fyrir því að fallið var frá því að fylgja lögbanninu eftir fyrir dómstólum. Önnur hafi verið sú að sterkar líkur voru á að því yrði hafnað. Lagaþekking hjá dómstólum væri meiri og betri en hjá sýslumannsembættinu í Reykjavík.

Hin ástæðan hafi verið ótti við að stór hópur reiðra viðskiptavina Kaupþings flytti viðskipti sín annað í dag.