Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Finnur segir endurskipulagningu

26. feb. 2010 - 11:58

Finnur segir endurskipulagningu Samskipa eðlilega: Arion hefði annars tapað 5 milljörðum

 

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa.

Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Arion-banka, sagði þingmönnum í viðskiptanefnd Alþingis á dögunum, að bankinn hefði haft eðlileg arðsemissjónarmið að leiðarljósi í samningum um endurskipulagningu Samskipa í samvinnu við stjórnarformann fyrirtækisins og aðaleiganda, Ólaf Ólafsson.

Þetta kemur fram í nýjasta hefti Viðskiptablaðsins. Þar kemur fram að Arion banki líti svo á að bankinn hefði tapað um fimm milljörðum króna hefði hann ekki gengið að hugmynd alþjóðlega bankarisans Fortis um endurskipulagningu Samskipa, en hún gengur út á að félag Ólafs og fleiri stjórnenda, sem heitir Samskip Management Team, eignist tæplega 90% hlutafjár í félaginu með því að koma inn með nýtt hlutafé upp á nokkur hundruð milljónir króna.

Heimildir Viðskiptablaðsins herma að Finnur hafi fært þessi rök fram á fundi Viðskiptanefndar, þar sem rædd var málsmeðferð viðskiptabankanna gagnvart stærstu viðskiptavinum sínum. Finnur mun hafa sagt á fundinum að Fortis, sem er stærsti einstaki kröfuhafi Samskipa, hefði sett fyrirtækið í þrot, yrði ekki farið að kröfum hans. Það hefði Arion banki ekki viljað, enda einkabanki sem yrði að gæta arðsemi.