<< Til Baka Senda á Facebook

Finnur Sveinbjörnsson

Finnur Sveinbjörnsson núverandi bankastjóri Nýja Kaupþings  telst til kúlufólksins á Íslandi sjá hér útskýringar á kúlulánum
 
Viðtal í VB við Finn 22. júlí 2008. Þar sgir Finnur m.a. gott að íslensku bankarnir hafi sigað lögfræðFinnur Sveinbjörnsson hefur ráðið stjórnvöldum heilt undanfarna mánuði varðandi upplýsingamiðlun.ingum á fjölmiðla sem fóru með fleipur um bankana...................!!!!!!!!!

Finnur Sveinbjörnsson, fyrrverandi bankastjóri Icebank og ráðgjafi stjórnvalda í efnahagsmálum, segir að öfgakennd og móðursýkisleg umfjöllun um íslenskt efnahagslíf í erlendum fjölmiðlum sé á undanhaldi. Þar hafi samstillt átak skipt máli. Ágætlega hafi tekist að fræða og upplýsa áhrifaríka viðskiptafjölmiðla um íslenskan fjármálamarkað og efnahagslíf.

„Bankarnir sjálfir, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð hafa lagt mikið á sig," segir Finnur, „að ógleymdum forsætisráðherra og utanríkisráðherra sem hafa talað á ráðstefnum og við fjöldann allan af viðskiptafjölmiðlum. Þá hefur Richard Portes, prófessor við London Business School reynst betri en enginn. Einnig tel ég að Kaupþing hafi gert rétt þegar bankinn hóf að siga lögfræðingum á fjölmiðla sem fóru með fleipur um bankann."

Finnur Sveinbjörnsson hefur ekki hugsað um afsökunarbeiðni.

skrifar:

Bankastjóri Nýja Kaupþings, Finnur Sveinbjörnsson, hefur ekki velt því fyrir sér hvort hann ætli að biðja þjóðina afsökunar á gjörðum bankans fyrir bankahrun.

Nú í hádeginu sagði fréttastofa RÚV frá því að Ásmundur Stefánsson, bankastjóri Nýja Landsbankans, hefði beðið þjóðina afsökunar á gjörðum bankans fyrir bankahrun.

„Ég hef ekkert velt því fyrir mér," svarar Finnur Sveinbjörnsson, bankastjóri Nýja Kaupþings, spurður hvort hann sjái ástæðu til, eða hyggi á að fylgja fordæmi Ásmundar.

Spurður málið hafi verið rætt segir hann svo ekki vera.

Spurður hvort það sé endilega Ásmunds, eða þá hans, að biðjast afsökunar á gjörðum forvera þeirra, segist hann ekkert hafa um það að segja.

Aðspurður hvort það komi til greina, eftir orð Ásmunds, að biðja þjóðina afsökunar, svarar Finnur: „Það er mál sem þarf að ræða innan stjórnar og er ekki hægt að ákveða í samtali við blaðamann."