Langflug, sem er nú gjaldþrota og skilur eftir sig 14 milljarða króna skuld, er í eigu Finns Ingólfssonar, fyrrum ráðherra Framsóknarflokksins og seðlabankastjóra.
Í efnahagsreikningi Langflugs kemur fram að Lárus Finnbogason, fyrrverandi formaður skilanefndar Landsbankans, var endurskoðandi Langflugs árið 2007. Krafa skilanefndarinnar á hendur þrotabúi Langflugs er liðlega 8 milljarðar króna.
Lárus er forstöðumaður endurskoðunarsviðs Deloitte. Hann er gamall skólabróðir Finns og kunningi en þeir eru auk þess flokksbræður. Finnur Ingólfsson, þá viðskiptaráðherra, skipaði Lárus í stjórn Fjármálaeftirlitsins árið 1999. Hann sat í stjórn FME til loka árs 2007 og var formaður stjórnarinnar það ár, sama ár og hann var titlaður endurskoðandi Langflugs hjá Finni.
Lárus var formaður skilanefndar Landsbankans frá setningu neyðarlaganna í október 2008 til loka júní en hann sagði upp störfum af persónulegum ástæðum eins og fram kom í tilkynningu frá skilanefndinni. „Frá fyrsta degi hefur mikið álag fylgt starfinu, sem hefur gert það að verkum að ég hef ekki getað sinnt sem skyldi margvíslegum verkefnum hjá Deloitte, þar sem ég er meðeigandi. Ég mun nú hverfa þangað til starfa.“
Spyrja má hvort raunveruleg ástæða brotthvarfs Lárusar úr skilanefndinni hafi verið yfirvofandi hagsmunaárekstrar, þar sem hann hafði árið 2007, þá enn í stjórn FME, áritað uppgjör Langflugs sem endurskoðandi Deloitte.
Gat Lárus skilanefndarformaður krafist 8 milljarða króna úr uppgjöri (þrotabúi) Langflugs sem hann hafði samþykkt sem endurskoðandi Deloitte?