Eiðfaxi:
Athafnamaðurinn Finnur Ingólfsson og kona hans Kristín Vigfúsdóttir eru forfallnir hestamenn og hrossaræktendur. Finnur og fjölskylda eiga og reka ræktunarbúið Vesturkot í Skeiðahreppi.

Í 7.tölublaði Eiðfaxa, sem kemur út mánudaginn 13.október n.k, heimsækjum við Finn og fjölskyldu í Vesturkot og skoðum uppbygginguna og hestakostinn þar og forvitnumst um lífið í sveitinni.
[...]
„Við leggjum töluverða áherslu á að taka þátt í keppnum með hestana okkar. Í sumar komum við til að mynda 14 hrossum inn á Landsmótið á Hellu og vorum þokkalega sátt við árangurinn. Einnig náðum við ágætum árangri á Íslandsmótinu. Nokkrir af keppnishestunum okkar eru í þjálfun í Halakoti, hjá þeim Svönu og Einari frænda mínum,“ segir Finnur. ,,Hins vegar hugsum við þetta fyrst og fremst sem hrossaræktarbú. Í ræktuninni leggjum við megináherslu á gott geðslag, mikla mýkt og góðan vilja. Ég er þeirrar skoðunar að ef allir þessir kostir eru til staðar í hesti er hægt að fá hann til að gera allt sem hann er beðinn um,“ segir Finnur. [...]
Eiðfaxi verður sendur til áskrifenda mánudaginn 13.október. Jafnframt er blaðið selt í lausasölu í hestavöruverslunum, Pennanum, Office 1, Olís Mosó og Selfossi og síðast en ekki síst á bensínstöðvum N1.