Einhverjum er það áhyggjuefni að Finnur Ingólfsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra og seðlabankastjóri, virðist hafa tapað mestum sínum eigum. Pólitíkusinn fyrrverandi hefur tapað öllum sínum eignahlut í Langflugi og er með skuldaslóð upp á 14 þúsund milljónir króna, að því er Stöð 2 sagði frá. Finnur hefur farið geyst undanfarin ár í viðskiptalífinu. Upohaf veldis hans er að finna í einkavæðingu Búnaðarbankans þegar hann og fleiri dyggir flokksmenn í Framsóknarflokknum náðu tökum á bankanum. En þótt syrt hafi í álinn hjá Finni er hann ekki persónulega ábyrgur fyrir sukkinu í Langflugi og þarf ekki að borga. Meðal eigna hans er Frumherji sem á og rekur orkusölumæla sem finna má inni á flestum heimilum. ÞAð var í tíð framsóknarmannsins Alfreðs Þorsteinssonar að' gerður var samnin gur við fyrirtæki Finns. Sá samningur er til ársins 2112. Mælarnir færa Finni 200 milljónir króna á ári. Það má því reikna með að eignir vesalings Finns dugi til að hann geti áfram notið lífsins lystisemda.
http://www.dv.is/frettir/2009/1/23/finnur-faer-200-milljonir-ari/