Finnur er eigandi Frumherja hf. Mynd: DV.
Í helgarblaði DV er velt upp ítarlegri nærmynd af Finni Ingólfssyni fyrrverandi ráðherra bankamála og seðlabankastjóri. Finnur er einn þeirra sem fjölmörgu sem högnuðust í góðærinu. DV kynnti sér sögu Finns frá því hann varð þingmaður og þar til íslenska góðærisaldan gerði strandhögg á liðnu hausti.
Finnur á eignarhaldsfélagið FS7 og Frumherja hf. sem hann keypti af Óskari Eyjólfssyni sumarið 2007. Þá var Jafet S. Ólafsson settur sem stjórnarformaður í félaginu. Hann situr einnig í stjórn Giftar.
Heimildarmaður sem DV ræddi við í vikunni segist hafa trú á Frumherja. Það hafi styrka tekjumyndun, ekki síst í ljósi þess að ef viðskiptavinirnir komi ekki kemur lögreglan bara með þá. Auk þess sé fyrirtækið vel uppbyggt með talsvert mikla starfsemi. Frumherji starfrækir faggilda starfsemi á sviði skoðana og prófana á ýmsum sviðum, svo sem skoðana á bifreiðum, skipum og rafmagni og löggildinga á mælitækjum. Til viðbótar sér fyrirtækið um öll ökupróf á landinu og sinnir notkunarmælingum á raforku, heitu vatni og köldu vatni fyrir orkuveitur. Gera má ráð fyrir því að Finnur hafi tapað verulegum verðmætum á falli bankanna.
„Ég reikna með að hann hafi tapað því sem hann fór með inn í Glitni og Icelandair. Nettóstaðan hans núna sé því á núlli eða neikvæð, eins og allra hinna,“ segir annar ónafngreindur heimildarmaður DV, sem starfað hefur innan viðskiptaheimsins í mörg ár, en þeir sem blaðið hefur rætt við síðustu daga hafa ýmist ekki viljað ræða um Finn eða óskað eftir nafnleynd.
Nærmynd af Finni í helgarblaði DV.