<< Til Baka Senda á Facebook

S-hópurinn með tak á GGE

S-hópurinn með tak á Geysi Green Energy

Finnur Ingólfsson. Finnur á einn félag sem heitir Fikt ehf. Það á drjúgan hlut Landvar ehf sem á hlut í VGK Invest sem á hlut í Geysir Green Energy...

Finnur Ingólfsson. Finnur á einn félag sem heitir Fikt ehf. Það á drjúgan hlut Landvar ehf sem á hlut í VGK Invest sem á hlut í Geysir Green Energy...

Föstudagur 10. júlí 2009 kl 10:36

Höfundur: (johannh@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

Finnur Ingólfsson, Helgi S. Guðmundsson, Kristinn Hallgrímsson og fleiri fjármálamenn tengdir S-hópnum og Framsóknarflokknum eru meðal minnihlutaeigenda í Geysir Green Energy. Þeir standa á bak við Mannvit / og VGK Invest sem er þriðji stærsti hluthafinn í GGE. Atorka er stærsti hluthafinn, en félagið er í greiðslustöðvun. Íslandsbanki á nánast jafnmikið í GGE og Atorka eða 40 prósent auk þess sem félagið skuldar bankanum á þriðja tug milljarða króna.

Árni Magnússon, fyrrverandi ráðherra og framsóknarmaður, hefur afskipti af framtíð GGE sem starfsmaður Íslandsbanka. Auk þess er Vilhelm Þorsteinsson yfirmaður fyrirtækasviðs bankans, en hann er sonur Þorsteins Vilhelmssonar, aðaleiganda Atorku, stærsta hluthafa GGE. Hluthafar í VGK-Invest og Atorku hafa því bæði ættar- og flokkstengsl inn í Íslandsbanka DV hefur heimildir fyrir því að minnilhlutaeigendur í GGE véli um framtíð GGE án samráðs við yfirstjórn Íslandsbanka, sem er stærsti kröfuhafi og eigandi GGE.