<< Til Baka Senda á Facebook

Mannvit í GGE í gegn um VGK-Invest

Mannvit á hlut í GGE í gegn um VGK-Invest

Finnur Ingólfsson á fyrirtæki sem heitir Fikt ehf. Það á Landvar ehf ásamt Helga S. Guðmundssyni. Landvar á í VGK-Invest. VGK-Invest á í GGE...

Finnur Ingólfsson á fyrirtæki sem heitir Fikt ehf. Það á Landvar ehf ásamt Helga S. Guðmundssyni. Landvar á í VGK-Invest. VGK-Invest á í GGE...

Laugardagur 11. júlí 2009 kl 13:09

Höfundur: (johannh@dv.is)

Sigurður Arnalds, stjórnarformaður verkfræðistofunnar Mannvits ehf, vill taka eftirfarandi fram vegna fréttaskýringar í helgarblaði DV um eignarhald og áhrif S-hópsins innan Geysir Green Energy:

"Mannvit hf. er stærsta verkfræðistofa landsins og varð til við sameiningu þriggja verkfræðistofa; Hönnunar hf., Rafhönnunar hf. og VGK hf. Í stjórn Mannvits hf eru eingöngu starfsmenn hjá fyrirtækinu sem jafnframt eru eigendur. Stjórnarformaður er Sigurður St. Arnalds verkfræðingur.

Mannvit á hlut með öðrum í allmörgum öðrum fyrirtækjum. Þau fyrirtæki eru að sjálfsögðu ekki Mannvit hf. Eitt þeirra er eignarhaldsfélagið VGK-Invest, sem á 6,8% hlut í Geysi Green Energy. Mannvit á þannig óbeinan hlut í því ágæta félagi. Sá hlutur er að mestu til kominn þannig að lagðir voru fram eignarhlutir forvera Mannvits í orkufyrirtækjunum Exorku og Enex. Að auki komu utanaðkomandi fjárfestar að málinu og eru nokkrir þeirra nafngreindir í greininni. Þeir koma hins vegar á engan hátt að starfsemi verkfræðistofunnar Mannvits og sitja þar ekki í stjórn eins og áður segir."

Í opinberum gögnum eru tengsl milli Mannvits og VGK-Invest. Þá tengjast Helgi S. Guðmundsson, Finnur Ingólfsson og Kristinn Hallgrímsson VGK-Invest einnig, en fyrirtækið Landvar ehf á drjúgan hlut í VGK-Invest. Það er í eigu Finns og Helga. Helgi situr í stjórn VGK-Invest og Finnur er í varastjórn.