Finnur vill að sveitarfélagið borgi heimreiðina
Finnur Ingólfsson kaupsýslumaður bað sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að leggja slitlag á heimreið að sveitarsetri sínu þar sem hann er með hestabúgarð. Sigurður Jónsson, sveitarstjóri kveðst í samtali við DV ekkert skilja í beiðni athafnamannsins. Finnur telur sjálfur að vegalagningin sé á ábyrgð sveitarfélagsins.
Finni Ingólfssyni, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóra, tókst ekki að fá sveitarfélag til að borga fyrir malbikaðan veg að sveitasetri sínu,
Vatnskoti í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hann fór þess á leit nýverið en fékk neitun um sveitarstyrkinn.
Sveitarfélagið stóð í malbikunarframkvæmdum við veginn nærri sveitasetrinu og Finnur fór fram á það við sveitarstjórnina að leggja einnig malbik á heimreið hans á kostnað sveitarfélagsins. Þá beiðni lagði hann fram fyrir röskum mánuði og áætlaður kostnaður við malbikun heimreiðarinnar er rúm milljón króna. Sveitarstjórnin hafnaði beiðninni hins vegar samstundis.
Sigurður Jónsson sveitarstjóri segir það venju að fólk greiði sjálft fyrir malbikun heimreiða og skilur ekki hvers vegna Finnur fór fram á það við sveitarfélagið að greiða fyrir framkvæmdina. Hann bendir á að Finnur hafi ekki einu sinni lögheimili á staðnum. „Hann sá að við vorum að leggja veginn nærri bústaðnum og hann hefur talið það eðlilegt að við tækjum hans verk í leiðinni. Okkur fannst hreint út sagt ekki koma til greina að greiða fyrir þetta. Þótt hann sé með einhverja búsetu þarna finnst okkur þessi beiðni gjörsamlega út úr kortinu og ég hef aldrei heyrt neitt þessu líkt,“ segir Sigurður.
Sigurður segir fulla samstöðu hafa ríkt um að hafna beiðninni. Hann telur eðlilegast að íbúar sjái sjálfir um að malbika eigin heimreiðar. „Okkur fannst þetta svo fráleitt að við neituðum þessu strax án þess að skoða málið frekar. Ég skil bara ekki hvers vegna hann sækir um þetta svona, sérstaklega svona miðað við hans stöðu. Ég hélt ekki að hann væri með þeim blönkustu á landinu,“ segir Sigurður.
Finnur segist ekki vera búinn að taka ákvörðun um næstu skref. „Fyrst sveitarfélagið var að malbika á annað borð hefði verið skemmtilegra að gera það alla leiðina.“