<< Til Baka Senda á Facebook

Langflug brotlendir

Finnur Ingólfsson.

Finnur Ingólfsson. mbl.is/ Golli

Viðskipti | mbl.is | 23.6.2009 | 10:11

Langflug tekið til gjaldþrotaskipta

Með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur sem kveðinn var upp 4. júní síðastliðinn var Langflug ehf. tekið til gjaldþrotaskipta. Langflug er í 2/3 hluta í eigu FS7, félags Finns Ingólfssonar, fyrrverandi ráðherra og seðlabankastjóra, og 1/3 hluta í eigu fjárfestingafélagsins Giftar.

Skipaður hefur verið skiptastjóri yfir þrotabúinu og er það Benedikt Ólafsson hæstaréttarlögmaður.

Langflug var stofnað haustið 2006 um eignarhlut sem Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga keypti í Icelandair Group.

Skilanefnd Landsbankans leysti til sín 23,84% hlut Langflugs í Icelandair Group í maí síðastliðnum en bankinn hafði fjármagnað kaup Langflugs á sínum tíma og voru hlutabréfin til tryggingar fyrir lánunum.