Eyjan, Innlent - laugardagur - 5.12 2009 - 13:01
Finnur kannast ekki við fölsuð gögn sem vísað var til á Wikileaks
Finnur Ingólfsson segist ekki kannast við þau fölsuðu gögn sem vísað sé til í sms-skilaboðum sem send voru til hans frá Þorsteini Helga Ingasyni á fyrrihluta þessa árs. Skilaboðin voru birt á vefsíðunni Wikileaks í gær.
Skilaboðin eru níu talsins og virðast benda til skjalafölsunar á efstu stigum í Kaupþingi. Boðin eru öll úr síma Þorsteins til Finns Ingólfssonar en þar er ekki að finna nein svör við þeim.
Fréttastofa Ríkisútvarpsins
náði tali af Finni í morgun og sagðist hann ekki kannast við það falsaða skjal sem vísað er til í skilaboðunum. Þá sagðist Finnur hafa fengið mörg sms-skilaboð send úr síma Þorsteins síðustu árin ásamt tölvupóstum og skýrslum. Þar óski Þorsteinn eftir aðstoð Finns í baráttu sem hann hafi átt við Búnaðarbankann, og síðar Kaupþing, í meira en tvo áratugi -eða allt frá því þegar fyrirtæki hans, Stokkfiskur, var gert gjaldþrota árið 1988. Þorsteinn telji sig eiga rétt á bótum þar sem hann hafi verið beittur rangindum í gjaldþrotameðferðinni.
Finnur segist ekki muna eftir öllum þeim skilaboðum sem hann hafi fengið frá Þorsteini í gegn um tíðina. Þá hafi hann eytt þeim boðum sem hann fékk á fyrrihluta þessa árs úr símanum sínum. Hann hafi ekki getað veitt Þorsteini þá aðstoð sem hann hafi beðið um. Finnur vill árétta að hann hafi ekki verið einn af aðaleigendum Kaupþings. Hann setið í stjórn bankans í rúmt ár þegar hann var forstjóri VÍS.