<< Til Baka Senda á Facebook

Fikt ehf., skilaði 450 milljón króna.

Fikt ehf., eignarhaldsfélag í eigu Finns Ingólfssonar fjárfestis og fyrrverandi ráðherra, skilaði hagnaði upp á tæplega 450 milljónir króna í fyrra, sama ár og íslensku bankarnir hrundu. Þetta kemur fram í ársreikningi Fikts fyrir árið 2008 sem skilað var til ríkisskattstjóra þann 6. október síðastliðinn. Mörg íslensk eignarhaldsfélög skiluðu tapi í fyrra enda byrjaði að kreppa að snemma á síðasta ári, lægðin endaði svo með hruni íslensku bankanna.

Finnur Ingólfsson græðir hundruð milljóna á þessu félagi á sama tíma og annað félag í hans eigu, Langflug, hefur verið tekið til gjaldþrotaskipta. Þó ber að geta þess að skuldir Fikts aukast úr rúmum 190 milljónum króna í tæplega 550 milljónir á milli ára. Kröfur í þrotabú Langflugs nema þrettán milljörðum hið minnsta, Landsbankinn á átta milljarða kröfu og þrotabú Glitnis fimm. Benedikt Ólafsson, skiptastjóri þrotabús Langflugs, sagði í viðtali við Fréttablaðið í lok ágúst að litlar eignir væru inn í Langflugi. Því má gera ráð fyrir að kröfuhafar Langflugs þurfi að afskrifa skuldir félagsins á endanum. Landsbankinn hefur jafnframt leyst til sín tæplega fjórðungshlut í Icelandair Group. Á sama tíma siglir Finnur lygnan sjó í Fikti.

Stærsti hluti hagnaðar Fikts er arður af hlutabréfaeign á árinu 2008, tæplega 390 milljónir króna. Eigið fé Fikts í árslok 2008 var nærri 400 milljónir króna á meðan eigið féð var rúmlega 100 milljónir í ársbyrjun 2007. Annað sem vekur athygli í ársreikningnum er að Fikt á rúmlega 560 milljóna króna kröfur á tengd félög, félög í eigu Finns að hluta eða öllu leyti.