- FS7 ehf. er fjárfestingafélag Finns Ingólfssonar. Eignir: Langflug ehf. Sjá breytingar á eignarhaldi við umfjöllun um það félag. Icelandair Group hf. http://www.dv.is/frettir/2009/1/9/finnur-tapadi-miklu/
S-hópurinn er ekki eiginlegt félag heldur nafnið á þeim hópi fyrirtækja sem sameiginlega keypti Búnaðarbankann árið 2003. Hópurinn dró (?dregur) nafn sitt af tengslum sínum við samvinnuhreyfinguna gömlu, þar á meðal Samband íslenskra samvinnufélaga. Keyptur var 45,8% hlutur í Búnaðarbankanum og kaupendur voru Ker, VÍS, Samvinnulífeyrissjóðurinn og Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga. Helstu persónur og leikendur í S-hópnum voru (eru?): Finnur Ingólfsson Helgi S. Guðmundsson Ólafur Ólafsson Þórólfur Gíslason
Samvinnusjóðurinn er sjálfseignarstofnun sem eignast átti þá hluti í Gift hf. sem ekki yrði ráðstafað til viðskiptavina gömlu Samvinnutrygginga vegna þess að þeir voru látnir eða uppfylltu ekki lengur það skilyrði sem sett var, að vera í viðskiptum við VÍS á ákvörðunardegi fulltrúaaráðsins. Finnur Ingólfsson er stjórnarformaður Samvinnusjóðsins.
Eigendur VÍS áður en félagið var selt til Exista voru m.a.: Kaupþing 29,6% (keypti af Keri) Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 25,8% Hesteyri 24,7% Samvinnulífeyrissjóðurinn 10% Eignarhaldsfélagið Andvaka 5,3% (vantar eigendur 4,6% hluta) Stjórnarformaður á þeim tíma var Þórólfur Gíslason. Eignir VÍS á þessum tíma, m.a.: Samskip SÍF Vinnslustöðin
Hlutafélagið Gift var stofnað til þess að ráðstafa til rétthafa Samvinnutrygginga eignum félagsins við slit Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga. Sagt var frá því sumarið 2007 að félagið ætti uþb 30 ma sem myndu ráðstafast til rétthafanna, rétt rúmu ári síðar skilaði skilanefnd eignarhaldsfélagsins umboði sínu til fulltrúaráðs þess sem fór með völdin í eignarhaldsfélaginu sökum þess að skilanefndin taldi engar eignir til staðar til þess að ráðstafa til rétthafanna. Á svipuðum tíma var greint frá því að Gift skuldaði 30ma umfram eignir.
Samvinnutryggingar, upphaflega tryggingafélagið, var svokallað gagnkvæmt félag, þ.e. eigendur töldust þeir sem voru í viðskiptum við félagið á hverjum tíma. Með stjórn Eignarhaldsfélags Samvinnutrygginga eftir að starfsemi félagsins hafði verið flutt inn í VÍS, fer svokallað fulltrúaráð sem skipað er 24 framsóknarmönnum (finna hvernig skipað, skilst að það hafi endurnýjað sig innan frá, þ.e. fulltrúar valið nýja fulltrúa).
Langflug var stofnað haustið 2006 um eignarhlut sem Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga keypti í Icelandair Group hf. Eignir:
Icelandair Group 32% (sjá breytingu á hlutfalli í skýringum á samskiptum FS7 ehf. og Langflugs hér fyrir neðan). Eigendur.
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga FS7 ehf. (byrjaði í ca 1%) Hlutur FS7 ehf. stækkaði í (?rúm?) 25% í desember 2006 þegar félagið keypti 25% hlut í félaginu fyrir einn milljarð króna (á genginu 1,00) auk þess að taka á sig ábyrgð á fjórðungshlut skulda Langflugs.