<< Til Baka Senda á Facebook

Exista

Exista er íslenskt fjármálaþjónustufyrirtæki stofnað í júní 2001. Það er eitt stærsta íslenska fyrirtækið mælt í eigin fé. Fyrirtækið var skráð á íslenskan hlutabréfamarkað í september 2006.
Meðal eigna Exista eru Vátryggingarfélag Íslands, Lífís og Lýsing, sem Exista á að öllu leyti. Exista á um fjórðungshlut í Kaupþingi Banka, 39,6% í Bakkavör Group og er stærsti hluthafinn í Símanum með 43.6% hlut.

Í febrúar 2007 tilkynnti fyrirtækið methagnað upp á ríflega 37 miljarða króna.[2] Jafnframt voru tilkynnt kaup á hlutum í finnska tryggingafélaginu Sampo Oyj að andvirði um 170 milljarða króna, samanlagður hlutur Exista er því 15,48% í fyrirtækinu.[3]

Í ágúst 2007 lauk Exista lántöku upp á 43 milljarða króna (~€500 milljónir). Mikil eftirspurn var hjá bankastofnunum eftir þáttöku og var því ákveðið að hækka lánsfjárhæðina um 300 milljónr króna. Alls tóku 27 bankar frá 12 löndum þátt í sambankaláninu. Umsjónarbankar eru Bayerische Landesbank, Fortis Bank, HSH Nordbank og Raiffeisen Zentralbank Österreich.[4]

Í byrjun árs 2008 féll úrvalsvísitalan, sem er vísitala byggð á gengi hlutabréfa 15 verðmætustu íslensku fyrirtækjanna, nokkuð hratt. Verðmæti Exista féll sömuleiðis. Sérfræðingur sænska blaðsins Dagens Industri skrifaði grein um fyrirtækið og sagði það vera mjög skuldsett og eiga í erfiðleikum.
Rekstrarform: Hlutafélag
Slagorð: Óþekkt
Hjáheiti: Óþekkt
Stofnað: 2001
Staðsetning: Reykjavík, Ísland
Lykilmenn: Lýður Guðmundsson stjórnarformaður, Erlendur Hjaltason forstjóri, Sigurður Valtýsson, forstjóri
Starfsemi: rekstur fyrirtækja, fjárfestingar, eignaleiga, tryggingar, o.fl.
Heildareignir Óþekkt
Tekjur Óþekkt
Hagnaður f. skatta Óþekkt
Hagnaður e. skatta Óþekkt
Eiginfjárhlutfall Óþekkt
Dótturfyrirtæki Óþekkt
Starfsmenn Óþekkt
Vefslóð www.exista.is