Lyndon LaRouche spáði gjaldþroti Íslands árið 2006.
Hinn 86 ára gamli bandaríski hagfræðingur Lyndon LaRouche spáði því árið 2006 að Ísland yrði gjalþrota. Egill Helgason fjallar um gagnrýni LaRouche á vefsíðu sinni og vitnar í grein frá árinu 2006 þar sem LaRouche lætur þessi ummæli falla við breska blaðið Daily Telegraph.
Greinin birtist stuttu eftir að bankakreppa skall á í lok mars 2006 þegar matsfyrirtækið Fitch lækkaði langtímahorfur lánshæfismats ríkissjóðs úr „stöðugum“ í „neikvæðar“. Í kjölfarið lækkaði krónan um 30 prósent og verðbólgan fór upp í níu prósent.
Í greininni er fjallað um vaxtamunaviðskipti (e. carry trade) á milli landa. Segir að á þeim tíma hafi verið hægt að taka lán í Japan eða Sviss með núll til eins prósents vöxtum. Síðan kaupa sér ríkisskuldabréf í löndum eins og Íslandi og Argentínu þar sem stýrivextir voru sem dæmi 10,75 prósent á Íslandi. Er þar átt við hin svokölluðu jöklabréf. (e. glacier bonds)
Í greininni er einnig vitnað í David Bloom hjá breska bankanum HSBC. Hann sagði að þegar í lok árs 2006 myndu þessi vaxtamunaviðskipti fara að valda mörgum löndum heimsins vandræðum.
Lyndon LaRouche var þó enn ómyrkrari í máli sínu. „Vaxtamunaviðskipti í jenum eru í verulegum vandræðum. Það að Daily Telegraph skuli fjalla um þetta þýðir að þetta fer að springa. Ísland og önnur lönd eiga eftir að verða gjaldþrota. En margföldunaráhrifin af vaxtamunaviðskiptunum munu hafa áhrif á alla óháð landsvæðum eða gjaldmiðlum. Þetta mun færa niður allt gamla Breeton Woods samkomulagið um fljótandi gengisstefnu,“ sagði hinn 86 ára gamli LaRouche.
Lyndon LaRouche er fæddur árið 1922 og er bandarískur hagfræðingur, heimspekingur og pólitískur aðgerðasinni. Stuðningsmenn hans hafa lýst honum sem fremsta hagfræðingi heimsins. Hann hefur átta sinnum boðið sig fram til forseta Bandaríkjanna í forvaldi Demókrata frá árinu 1976.