Eyjan, Innlent - þriðjudagur - 16.2 2010 - 07:17
Þórólfur segir Evu Joly fara með rangt mál: Hefur ekki kynnt sér staðreyndir
Þórólfur Matthíasson, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands, segir það rangt hjá Evu Joly að eignir þrotabús Landsbankans muni ekki duga fyrir nema 30 prósentum af skuldum vegna Icesave. Þetta kemur fram í grein sem birtist bæði í Fréttablaðinu og norska dagblaðinu Aftenposten.
Þórólfur gagnrýnir Joly fyrir að fullyrða að samkvæmt Icesave-samningnum þurfi íslenskir skattgreiðendur að greiða samtals 700 milljarða króna. “Með því að gera þessa tölu að megininntaki greinar sinnar undirstrikar Eva Joly að hún hefur látið glepjast af áróðri InDefence og látið undir höfuð leggjast að kynna sér staðreyndir málsins,” skrifar Þórólfur. Hann segir Joly mögulega rugla saman heildarkröfum í bú Landsbankans og forgangskröfum í útreikningum sínum.
Þorólfur gagnrýnir grein sem Eva Joly birti samtímis á Íslandi og í Noregi. “Þar er það pólitíkusinn Eva Joly sem stýrir penna. Í greininni eru fullyrðingar og röksemdir sem ekki eru réttar og mega ekki standa óleiðréttar. Málflutningur er snertir framtíð Íslands verður að byggja á traustum staðreyndum,” skrifar hann.
Hann segir Evu Joly halda því fram að hann hafi stutt kröfur Breta og Hollendinga í IceSave málinu, en því sé víðs fjarri. Hann hafi þó spurt hver sé ábyrgð Íslendinga í málinu.
“Hátti svo til að kjósendur í lýðræðisríki kjósi, kosningar eftir kosningar, stjórnmálamenn sem setja venslamenn, vini og spilafélaga í eftirlits- og umboðsstöður án þess að huga að getu þessara einstaklinga til að sinna störfum sínum, þá er ábyrgðin á slökum verkum embættis- og eftirlitskerfisins ekkert síður kjósendanna en þeirra sem afglöpin frömdu,” skrifar Þórólfur og spyr svo:
“Persónulega þykir mér sárt að sitja undir ásökunum um að ganga erinda erlendra þjóða þegar tilefnið er ekki annað en þessi einfalda spurning: bera íslenskir kjósendur ekki ábyrgð á íslenskum stjórnmálamönnum og íslenskum embættismönnum?”
Þórólfur rekur að í grein sinni hafi Eva Joly haldið því fram að IceSave samningurinn gangi útá að hver Íslendingur frá vöggubarni til elsta ellilífeyrisþega skuli greiða 12.000 evrur til Breta og Hollendinga. Samanlagt geri þetta tæpa 700 milljarða króna. “Þetta er sú tala sem InDefense hefur haldið hvað hæst á lofti. Hvað eftir annað hefur verið sýnt fram á að þessi fullyrðing er röng, nú síðast af Ann Sibert, prófessor við Birkbeck College í London og meðlimi í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands. Með því að gera þessa tölu að megininntaki greinar sinnar undirstrikar Eva Joly að hún hefur látið glepjast af áróðri InDefense og látið undir höfuð leggjast að kynna sér staðreyndir málsins.
Hið rétta er að þrotabú Landsbankans mun greiða yfir 90% af forgangskröfum. Þetta kemur skýrt fram í opinberum gögnum skilanefndarinnar.
Í grein sinni fullyrðir Eva Joly að þrotabú Landsbankans muni aðeins greiða 30% af IceSave kröfunni. Þessi fullyrðing er röng enda sá efnahags- og viðskiptaráðherra sig til þess knúinn að mótmæla henni kröftuglega þegar grein Evu Joly birtist,” segir Þórólfur Matthíasson og telur hann að öll rök hnígi í þá átt að eignasafn gamla Landsbankans hafi verið vanmetið í upphafi hruns enda tíðkist iðulega að meta varlega í upphafi meðan margt er óljóst.