Pressan, 19. okt. 2009 - 10:26
Peningaþvættisskrifstofu embættis ríkislögreglustjóra bárust alls 520 tilkynningar um peningaþvætti í fyrra. Flestar tilkynningarnar vörðuðu minniháttar upphæðir, eða undir eina milljón, en í sjö tilvikum var tilkynnt um upphæðir yfir 10 milljónum króna. Engin tilkynning barst vegna gruns um fjármögnun á hryðjuverkum.
Þetta kemur fram í ársskýrslu peningaþvættisskrifstofu. Langflestar tilkynningarnar, 514, bárust frá fjármálafyrirtækjum. Tvær komu frá endurskoðendum og fjórar komu frár erlendum eða öðrum aðilum.
18 tilkynningar leiddu til rannsóknar, þar af 14 vegna sama málsins. Engin tilkynning leiddi hins vegar til rannsóknar af hálfu efnahagsbrotadeildarinnar. Jafnframt féll enginn hæstaréttardómur um peningaþvætti í fyrra.
Aldrei áður hafa fleiri tilkynningar borist embættinu. Aðeins ein tilkynning barst árið 1994 þegar núverandi kerfi var fyrst tekið upp en þeim hefur fjölgað ár frá ári og voru tilkynningarnar 496 talsins í fyrra. Heildarfjárhæðin lækkaði hins vegar um ríflega 336 milljónir frá í fyrra, sem rekja má til bankahrunsins.