Eva Joly (fædd Eva Gro Farseth) (5. desember 1943) er norsk-franskur dómari og rannsóknardómari sem hefur s
érhæft sig í baráttu gegn fjármálaspillingu. Árið 1994 varð hún yfirrannsóknardómari (juge d’instruction) þegar hún varð lykilmaður í stærsta spillingarmáli sem upp hefur komið í Frakklandi þegar olíufélagið Elf Aquitaine var grunað um misferli. Eftir rannsóknir hennar leiddi hún fjölda háttsettra embættis- og stjórnmálamanna til dóms og sakfellingar. Þræðir þessa máls lágu víða, m.a. til Þýskalands þar sem nafn Helmut Kohl tengdist vafasömum viðskiptum og meintum mútugreiðslum.
Hún fluttist 18 ára gömul til Frakklands, starfaði sem au pair og lærði lögfræði í kvöldskóla og sérhæfði sig í fjármálalögfræði.
Þann 10. mars 2009 var Eva ráðin sem sérstakur ráðgjafi íslensku ríkisstjórnarinnar í kjölfar bankahrunsins 2008. Hún hafði gagnrýnt fámenni þess rannsóknarhóps sem rannsaka á bankahrunið, og skort á fagmönnum í alþjóðlegri fjármálaspillingu.
Úr Silfri Egils: Joly, sem er einn þekktasti sérfræðingur í efnahagsbrotum í heiminum, sagði í þætti Silfri Egils í dag að útilokað væri að grafast fyrir um og fá upplýsingar um brot hjá fjármálafyrirtækjum og yfirvöldum erlendis án þess að rannsaka málið hér heima fyrst og sanna að brot hefðu átt sér stað.