<< Til Baka Senda á Facebook

Davíð Oddsson

Davíð Oddsson (fæddur 17. janúar 1948) er íslenskur stjórnmálamaður og var forsætisráðherra Íslands frá árinu 1991 til ársins 2004 lengst allra, en var einnig borgarstjóri í Reykjavík frá árinu 1982 til 1991, utanríkisráðherra frá 2004 til 2005 og formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu 1991 til 2005. Davíð gegndi stöðu aðalbankastjóra Seðlabankans 2005 til 2009. Hann er einn sigursælasti og vinsælasti, en um leið umdeildasti, stjórnmálamaður Íslandssögunnar. Forystuhæfileikum hans hefur oft verið líkt við hæfileika fyrrum formanna Sjálfstæðisflokksins, Jóns Þorlákssonar, Ólafs Thors og Bjarna Benediktssonar.


 Það sem Davíð Oddsyni hafi líkað við Samson hópinn var að greiðslur fyrir Landsbankann voru peningar sem komu inn í landið vegna sölu Samson hópsins á Bravo bruggverksmiðjunni í Rússlandi. Samson hópurinn voru Björgólfur Guðmundsson, sonur hans Björgólfur Thor og Magnús Þorsteinsson.



Talið er að Samson hópurinn hafi ekki bara fengið Landsbankann á silfurfati heldur einnig fengið 700milljón króna afslátt síðar meir  frá kaupverðinu .Ágreiningur kom síðan upp um listaverk í bönkum Landsbankans. Að lokum tók Björgólfur til sinna ráða og greiddi 200 milljón krónur fyrir þau. (góð flétta).