Ummæli Björgvins G. Sigurðssonar, fyrrverandi Viðskiptaráðherra, á vefsíðu sinni bjorgvin.is eru nú aðgengilegar á heimasíðunni vefsafn.is. Björgvin lokaði vefsíðunni stuttu fyrir bankahrunið. Þar er að finna mikið af greinum eftir Björgvin þar sem hann fer fögrum orðum um íslensku útrásarfyrirtækin og ítrekar sterka stöðu íslensku bankanna.
Í starfi sínu sem viðskiptaráðherra tók Björgvin mjög eindregna afstöðu með útrásinni og gagnrýndi þá sterklega sem vöruðu við henni. Í október 2007 fór Björgvin til Kaupmannahafnar þar sem hann flutti lofsama ræðu um íslensku útrásarfyritækin og gaf það í skyn að Danir þyrftu ekki að hafa miklar áhyggjur af störfum þeirra. Lauk ferðinni í Tívolíunni í Kaupmannahöfn þar sem Stoðir, eignarhaldsfélag, kynnti samruna félagsins við nokkur önnur undir nýjum formerkjum.
Björgvin um útrásina:
bjorgvin.is 25. júlí 2007
„Kaup Novators á Actavis renna enn frekari stoðum undir útrásina. Stærstu viðskipti Íslandssögunnar og verða vonandi til þess að auka enn á styrk útrásarmanna til frekari landvinninga erlendis.“
bjorgvin.is 25. júlí 2007
„Við þurfum að ná sama eða ennþá meiri slagkrafti í útrás orkufyrirtækja erlendis en þar eru óendanleg tækifæri fyrir okkur. Einn útrásarmanna lét hafa eftir sér að næðum við að leysa úr læðingi kraftinn í orkufyrirtækjunum yrðu sú útrás margföld á við útrás fjármálafyrirtækjanna. Ekki laklegt það.“
Viðskiptablaðið desember 2007
„Kraftur, kjarkur og góð þekking íslensku útrásarmannanna skilaði skilaði meiri árangri hraðar við fjárfestingar erlendis en hægt var að sjá fyrir og víkingurinn hefur vakið athygli á alþjóðavísu.“
Nánar í miðvikudags- og fimmtudagsblaði DV.