Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Ný rannsókn í Hollandi

Eyjan, Innlent - föstudagur - 12.2 2010 - 09:14

Seðlabanki Frakklands segir að Björgvin fari með rangt mál um Icesave. Ný rannsókn í Hollandi

bjorgvingsigurdsson.jpgSeðlabanki Frakklands,  Banque de France, segir að Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, fari með rangt mál þegar hann fullyrði í grein í hollensku blaði að Frakkar hafi neitað að heimila Icesave-reikning þar í landi. Ekkert slíkt erindi hafi borist og þar af leiðandi hafi engu erindi verið synjað.

Frá þessu er greint í mörgum hollenskum fjölmiðlum í dag.

Fram kemur einnig að fjármálaráðherra Hollands, Wouter Bos, hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á sannleiksgildi staðhæfinga yfirmanna hollenska seðlabankans og fjármálaeftirlitsins að íslensk stjörnvöld hafi sagt hollenskum stjórnvöldum ósatt um stöðu Landsbankans og íslenska bankakerfisins árið 2008.