Föstudagur 2. október 2009 kl 09:43
Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)
Nánar um málið í DV í dag.
-
Niðurlag faxsendingar starfsmanns Bernards og Ingimars, þar sem lögmaður Björgólfsfeðga á skrifstofu hins umdeilda danska lögfræðings J.P.Galmonds hótar að leysa „glæpaöfl" úr læðingi - að senda rússnesku mafíuna á þá.
Lögmaður Björgólfsfeðga í Bravo-málinu, Sunne Thorson, hótaði Ingimar Ingimarssyni og Bernard Lardner að glæpaöfl myndu hlutast til um ágreining þeirra um bruggverksmiðjuna í Pétursborg. Þetta var árið 1995. Ástæðan var sú að Ingimar og Lardner höfðu ákveðið að fara með ágreininginn um verksmiðjuna fyrir gerðardóm.
Þetta kemur fram í annarri grein Halldórs Halldórssonar um viðskipti Ingimars og Björgólfsfeðga í Rússlandi á síðasta áratug 20. aldar sem er að finna í helgarblaði DV. Í fyrri greininni, sem birt var um síðustu helgi, sýndi Halldór fram á þau sjónarmið Ingimars að Björgólfsfeðgar hefðu stolið verksmiðjunni með því að falsa hluthafasamþykktir BBP-verksmiðjunnar, sem síðar var nefnd Bravo. Björgólfsfeðgar seldu verksmiðjuna síðan og komu til Íslands og keyptu Landsbankann í ársbyrjun 2002.
DV hefur undir höndum minnismiða þáverandi starfsmanns Ingimars, Þórs Kristjánssonar, þar sem hann greinir Ingimar frá því að Thorson hjá lögfræðistofunni J.P.Galmond hafi hringt í lögfræðing BGL, eignarhaldsfélags Ingimars og Lardners, og lýst yfir óánægju sinni með að ákveðið hefði verið að fara með eignaskiptaágreininginn fyrir gerðardóm.
Í símtalinu vitnaði hann til munnlegs samkomulags á milli lögfræðings BGL og hans sjálfs og sagði að nú væri fallið úr gildi samkomulag um að blanda ekki einhverjum glæpaöflum í málið. „Hann staðhæfði þetta rólegum en hótandi hætti,“ segir Þór í skilaboðum sínum til Ingimars.
Á skrifstofu Ingimars og Bernards var þetta túlkað sem hótun um að verið væri að gefa í skyn að senda ætti mafíuna á þá og að því væri verið að hóta þeim.