19. nóv. 2009 - 15:57
„Viljið þið okkur út úr Íslandi? Ef svo er, láttu mig vita.“ Þetta sagði Björgólfur Thor Björgólfsson við Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, haustið 2008 í kringum hrun íslensku bankanna. Spurningunni var ekki svarað.
Þetta kemur fram í nýútkominni bók Styrmis Gunnarssonar, Umsátrið. Spurningin átti ekki bara við Björgólfsfeðga, heldur alla útrásarvíkinga. Björgólfur Thor mun hafa sagt Geir að hann vissi að hann myndi ekki svara þessari spurningu hans beint, en ef hann vildi þá úr landi mætti Geir láta hann vita í gegnum millilið. Nefndi Björgólfur Thor Kjartan Gunnarsson í því sambandi.
„Hann hafði ekki spurt nema vegna þess, að hann hafði fengið einhverja tilfinningu fyrir því, að svona væri það. Hinir einkavæddu bankar og útrásarvíkingarnir, sem störfuðu í nánu sambandi við þá, voru orðnir svo fyrirferðarmiklir í íslenzku samfélagi, að þeir höfðu ráð nánast allra í hendi sér. Þeir höfðu vaxið þjóðfélaginu yfir höfuð. Öll völd voru í þeirra höndum. Alþingi hafði lítið að segja. Ríkisstjórnin ekki miklu meira. Í raun varð þjóðin að sitja og standa eins og þeim þóknaðist sem höfðu peningana í höndum.“
Styrmir segir í bókinni að Björgólfur hafi ekki fengið svar við spurningu sinni. En sú staðreynd að hún hafi verið borin upp segi sína sögu.