<< Til Baka Senda á Facebook

Björgólfur Thor Björgólfsson

 Athugið: Hvítbók.vg metur Björgólf Thor Björgólfsson til hugsanlegs útrásarvíkings og viðskiptajöfurs?  Hvítbók.vg hefur ítrekað reynt að finna tölfupóstfang og símanúmer Björgólfs  en án árangurs. Við bendum Björgólfi  á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við hann um að senda okkur póst á hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar úrbætur og yfirfara og meta. Hvítbók.vg er ekki að dæma útrásarvíkinga fyrirfram um hugsanlega meintan glæp eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppfletirit um Miklahvell í haust á einum stað. Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár. Vinna er þegar hafin á því.

Björgólfur Thor Björgólfsson
(f. 19. mars 1967) er íslenskur kaupsýslumaður og útrásarvíkingur. Hann er þekktur erlendis sem Thor Björgólfsson. Björgólfur Thor var fyrsti Íslendingurinn sem komst á lista Forbes Magazine yfir 500 ríkustu einstaklinga heimsins. Í mars 2008 voru eignir hans metnar á 3,5 milljarða dollara, eða um 227 milljarða króna.Björgólfur er sonur Björgólfs Guðmundssonar, sem einnig var
fyrirferðamikill í íslensku viðskiptalífi. Hann er í sambúð og á eitt barn. Heimili hans er í London og hann á hús í
Fossvoginum.