Þóra Hallgrímsson greiddi 1,4 milljón króna málskostnaðartryggingu fyrir eiginmann sinn, Björgólf Guðmundsson, sem honum var gert að greiða vegna stefnu á hendur fréttastjóra og blaðamanni Stöðvar 2 og Vísir.is. Málskostnaðartrygging hefur sömuleiðis verið lögð fram fyrir hönd Magnúsar Þorsteinssonar.
Þórunn Guðmundsdóttir, lögmaður Björgólfs, staðfestir þetta í samtali við DV. Hún segir Þóru hafa lagt trygginguna fram fyrir Björgólf þann 12. október.
Björgólfur gat sjálfur ekki lagt fram trygginguna þar sem hann hefur verið úrskurðaður gjaldþrota. Þau hjónin búa þó enn á 437 fermetra glæsiheimili sínu að Vesturbrún í Reykjavík þar sem Þóra er skráður eigandi þess. Kröfuhafar í bú Björgólfs geta því ekki gert tilkall til hússins. Málið snýr að fréttaflutningi Stöðvar 2 og vísis um meintar millifærslur auðmanna á peningum yfir á erlenda bankareikninga í bankahruninu.