<< Til Baka Senda á Facebook

Björgólfur Guðmundsson

Athugið: Hvítbók.vg metur Björgólf Guðmundsson  hugsanlega til útrásarvíkings og viðskiptajöfurs?   Við bendum Björgólfi á að ef við förum með staðreyndarvillur og/eða hann vill einhverjar úrbætur um umfjöllun um sig á Hvítbók.vg þá biðjum við Björgólf um að senda okkur póst á hvitbok@hvitbok.vg Við munum taka allar ábendingar um hugsanlegar staðreyndarvillur til skoðunar. Hvítbók.vg er ekki að dæma  hugsanlega útrásarvíkinga og viðskiptajöfra  fyrirfram um hugsanlega meinta  glæpi eða afglöp í starfi, heldur var ráðist í þetta verkefni til að vera með stærsta uppflettirit um Miklahvell í haust á einum stað. Verkefnið verður kynnt um allan heim síðar í ár á erlendum tungumálum. Vinna er þegar hafin á því verkefni

Björgólfur gekk í Verslunarskóla Íslands. Hann hóf nám í lögfræði við Háskóla Íslands en hætti eftir tvö ár. Hann sat í stjórn Heimdallar, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, árin 1965-68. Hann var framkvæmdastjóri Dósaverksmiðjunnar. Hann var ráðinn framkvæmdastjóri Hafskips árið 1977, íslensks flutningafyrirtækis sem varð gjaldþrota á níunda áratugnum. Óeðlileg viðskipti við Útvegsbankann voru gagnrýnd og málið varð fyrirferðarmikið í umræðunni. Svo fór að Útvegsbankinn var lagður niður og Björgólfur dæmdur í eins árs skilorðsbundið fangelsi árið 1991.

Þá hélt Björgólfur út til St. Pétursborgar, Rússlandi, árið 1993 og stofnaði drykkjarvöruverksmiðjuna Bravo Brewery ásamt syni sínum Björgólfi Thor og Magnúsi Þorsteinssyni. Í febrúar 2002 seldu þeir Heineken verksmiðjuna fyrir $400 milljónir.

Björgólfur sneri vellauðugur aftur til Íslands og var í forsvari svokallaðs Samson-hóps sem keypti 45,8% hlut í Landsbanka Íslands á 12,3 milljarða kr, sem var einkavæddur í skrefum á árunum 1998-2003. Hann hefur setið í stjórn bankans síðan í febrúar 2003. Árið 2005 var hann sæmdur Riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir framlag til viðskiptalífs og menningar. Nýlega hefur hann aðstoðað Eggert Magnússon við kaup á enska úrvalsdeildarfélaginu West Ham United F.C.. Í kjölfarið var Björgólfur skipaður heiðursformaður knattspyrnufélagsins.[2] Úr Wilkepedia.

Eftir bankahrunið haustið 2008 hefur Björgólfur verið harlega gagnrýndur fyrir starfsemi bankans og tengsla sinna við skattaskjól. Hefur hann látið lítið fara fyrir sér síðan þá.

Helstu félög Björgólfs, eru gjaldþrota, eða bíða þess að verða tekin til skipta.

Björgólfur féll af lista Forbes tímaritsins yfir auðmenn veraldar. Voru eignir hans metnar á $1.2 milljarða árið 2007, en er í dag metin á $0



Viðtal við Agnesi Bragadóttir Morgunblaðinu


Björgólfur segir í viðtalinu:
„Það hefur verið margbent á hversu hættuleg jöklabréfin eru. Við erum að greiða af jöklabréfunum hæstu mögulega vexti, þannig að Íslendingar hafa verið að greiða útlendingum meira en 10% vaxtamun, sem nemur 60 til 70 milljörðum króna á ári. Ef ég man rétt, þá fer sú upphæð langleiðina í að vera hin sama og þjóðarbúið fær fyrir útlutning sjávarafurða á ári.“

Einnig segir Björgólfur: „Það er auðvitað spurning hvort það var ekki m.a. vegna jöklabréfanna sem við gátum ekki lækkað vaxtastigið hér á landi, sem hefur um langt skeið verið að drepa atvinnulíf og einstaklinga“.

Björgólfur var fyllilega meðvitaður um það hvað var að í kerfinu, en gat ekki eða náði ekki að breyta því. Stjórn Seðlabankans var einnig meðvituð, en taldi stöðugt að lækkun stýrivaxta kæmi ekki til greina, því að þá ryki verðbólga upp. Fyrir vikið var litla krónublaðran blásin svo upp að öllum varð að lokum ljóst að hún springi, bara ekki með svo stórum hvelli sem varð.

Við upplifun síðustu vikna telja margir að Björgólfur hafi gert mistök. Eflaust einhvers staðar, en ef stöðugt er einblínt á þau, þá nýtur maðurinn alls ekki sannmælis sem einn okkar allra helstu athafnamanna, sem hefur látið okkur njóta jákvæðni og starfsorku sinnar drýgsta hluta ævinnar. Hvort sem hann kemur ríkur eða fátækur út úr þessari raun, þá þurfum við hans með í okkar hópi á ferð okkar um eyðimörkina framundan.


mbl.is Krónan stærsta vandamálið