Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Meira REI!

Innlent - föstudagur, 23. nóvember, 2007 - 11:51

OR kaupir Bjarna og Jón Diðrik út úr REI

stjor1.jpg Orkuveita Reykjavíkur annars vegar og eignarhaldsfélög Bjarna Ármannssonar og Jóns Diðriks Jónssonar hins vegar hafa komist að samkomulagi um að Orkuveitan kaupi aftur það hlutafé í Reykjavik Energy Invest sem þau lögðu inn í félagið í september síðastliðnum.

Samningar þessa efnis verða lagðir fyrir stjórn Orkuveitu Reykjavíkur í næstu viku.

Samkomulag er um að Bjarni Ármannsson sitji sem formaður REI til áramóta. Þá tekur fulltrúi Orkuveitunnar við.

Útfærsla samkomulagsins er á þann veg að Orkuveitan kaupir hlutabréf eignarhaldsfélaganna í REI á því verði sem þau voru seld á, að viðbættum þeim vöxtum sem fjármunirnir hafa borið frá þeim tíma er þau voru greidd. Hlutafjárframlög rei.jpgeignarhaldsfélaga Bjarna og Jóns Diðriks voru greidd inn á reikning þar sem þau hafa staðið óhreyfð.

Í fréttum RÚV kom fram að Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon, fulltrúar sjálfstæðismanna, hafa óskað eftir fundi í stjórninni sem fyrst, helst í dag, og var haft eftir Júlíusi að hann væri mjög ósáttur við þann skort á upplýsingum sem einkenndi meðferð málsins. Einnig væri hann ósáttur við frestun eigendafundar sem halda átti í dag.