Bjarni Ármannsson milljarðamæringur tekur þjóðina í kennslustund þegar hann segir að það hefði verið óábyrgt af honum að borga 800 milljóna króna skuld sem hann stofnaði til. Á sama tíma dynur áróður yfir fólkið í landinu um siðferðislega skyldu þess til að halda áfram að borga af skuldum sínum fram í rauðan dauðann.
Bjarni segir að það væri „óábyrg meðferð á fé“ af hans hálfu, að borga skuld sem hann þarf ekki að borga. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra færir þjóðinni hins vegar annan boðskap. Hann útskýrði síðast á mbl.is 1. september hvers vegna fólk hefði siðferðislega skyldu til að borga áfram af húsnæðislánum sínum þrátt fyrir að afborganir hafi verið hækkaðar svo mikið að fólk ráði varla við þær. „Ég tel það mikið ábyrgðarleysi að hvetja til uppgjafar eða hreinlega að menn bara hætti að greiða. Því það mun bara leiða ófarnað yfir okkur öll; Þá sem í hlut eiga, þeirra vandamál gera ekkert annað en að aukast, og samfélagið í heild.“
Bjarni hlýtur hins vegar að líta svo á að hann beri skyldur gagnvart fjárhag fyrirtækja sinna, umfram skyldur gagnvart samfélaginu í heild. Þetta er reyndar ekkert nýtt. Stjórnendur fyrirtækja setja fyrirtækin jafnan í forgang. Og það er í raun eðlilegt að líta svo á að hver einstaklingur hafi fyrst og fremst skyldur gagnvart sjálfum sér og fjölskyldu sinni, frekar en gagnvart bankakerfi samfélagsins.
Húseigendur standa frammi fyrir mörgum siðferðislegum spurningum. Er það ábyrgt af hálfu foreldra gagnvart börnunum að fórna fjárhag fjölskyldunnar fyrir afborganir af stökkbreyttum skuldum, sem aldrei var stofnað til? Hafa venjulegir Íslendingar sérstakar skyldur gagnvart bönkum landsins að borga meira en var tekið að láni? Er ábyrgt af þér að rýja sjálfan þig inn að skinni til að borga banka sem hefur svipt þig ævisparnaðinum og heldur áfram að hækka skuldirnar þínar?
Áróður Steingríms J. um siðferðislega skyldu húseigenda gagnvart samfélaginu gengur ekki upp þegar fólk þarf að horfa upp á hönnuði hrunsins fá afskrifaðar milljónir á færibandi. Í samfélagi þar sem Bjarni Ármannsson þarf ekki að borga skuldir sínar þótt hann geti það er óréttlætanlegt að krefjast þess að almenningur fórni sér.