Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Ekki vorkenna

Bjarni Ármannsson: „Ætla ekki að vorkenna sjálfum mér“

Eigandi og forstjóri Karl Wernersson, sem fer fyrir Milestone, stærsta eiganda Íslandsbanka, og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka. Bjarni Ármannsson, fyrrverandi bankastjóri, hefur orðið fyrir aðkasti eftir bankahrunið; til að mynda var veist að honum þegar hann var viðstaddur fótboltaleik þar sem sonur hans var að spila. Hann vill ekki gera mikið úr málinu.

„Það er nú líka búið að barna söguna dálítið með orðalaginu „að veitast að” en ég held að ég geti ekki verið að ræða þetta. Núna og á næstunni get ég ekki kommenterað um svona mál. Fólk á líka víða svo sárt um að binda, og ég ætla ekki að fara að vorkenna sjálfum mér á neinn hátt.“

Spurður hvort það sé sanngjarnt og við hæfi að blanda fjölskyldu og börnum manna og kvenna inn í umræðuna og athafnir í kringum banka- og efnahagshrunið, þótt staðan sé víða slæm hjá almenningi, segir Bjarni:

„Mér finnst ég ekki í neinni aðstöðu til að taka þátt í þeirri umræðu.“

Blaðamaður biður Bjarna endilega að vera í sambandi ef eitthvað fréttnæmt og jákvætt gerist, og tók hann vel í það.

„Ég skal koma með eitthvað input.“