Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg
Bjarni Ármannsson selur fyrir 7 ma.kr. í Glitni Lárus Welding, nýr forstjóri Glitnis, hefur keypt í bankanum fyrir tæpa 4 milljarða króna. Bjarni Ármannsson, fráfarandi forstjóri Glitnis, hefur selt hluti sína í bankanum fyrir tæpa 7 milljarða króna. Kaupandinn er Glitnir banki. Lárus Welding, nýr forstjóri Glitnis, hefur keypt í bankanum fyrir tæpa 4milljarða króna, samkvæmt upplýsingum frá Kauphöllinni. Um er að ræða 150 milljónir hluta á genginu 26,6 en við hádegi var markaðsgengið 27,05 krónur á hlut. Bjarni Ármannsson, fráfarandi forstjóri Glitnis, hefur selt hluti sína í bankanum fyrir tæpa 7 milljarða króna. Kaupandinn er Glitnir banki. Bjarni seldi á genginu 29 sem er meira en núverandi markaðsvirði bankans. Hann á áfram hlut í bankanum sem er um 1,5 miljarðs króna virði miðað við þetta gengi. Fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gær að starfslokakjör Bjarna hjá Glitni næmu á milli 800 og 900 miljóna króna. Í þeirri tölu væri hagnaður Bjarna af sölu hlutabréfa, auk starfslokagreiðslna sem næmu um hálfum miljarði króna.
Fram kom í fréttum Sjónvarpsins í gær að starfslokakjör Bjarna hjá Glitni næmu á milli 800 og 900 miljóna króna. Í þeirri tölu væri hagnaður Bjarna af sölu hlutabréfa, auk starfslokagreiðslna sem næmu um hálfum miljarði króna.