Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær, námu heildarskuldbindingar félaga í eigu Baugs hjá Landsbankanum í London um 58 milljörðum króna, eru þá ótalin útlán Baugs hjá bankanum á Íslandi.
Ljóst er að útlán Baugs hjá Glitni og Kaupþingi voru auk þess veruleg og heildarskuldbindingar Baugs til viðskiptabankanna þriggja sé vel yfir 100 milljörðum króna.
Stærsta einstaka lánið til fyrirtækis í eigu Baugs var til bresku prentverksmiðjunnar Wyndeham Press Group. Það lán nam tæpum 35 milljörðum króna þegar bankinn fór í þrot í október síðastliðnum.
Kaupin á Wyndeham voru valin versta fjárfesting ársins 2006 samkvæmt Markaðinum.
Wyndeham er nú í eigu fjárfestingasjóðsins Walstead Investments sem festi kaup á prentsmiðjunni að mestu með yfirtöku á skuldum í desember 2008, en Landsbankinn hafði þegar afskrifað lán félagsins.
Mörg önnur félög sem voru í eigu Baugs eru Íslendingum kunnugleg, skuld þeirra við Landsbankann má sjá hér að neðan.
Goldsmiths - 9,5 milljarðar króna
Iceland Food - 8,9 milljarðar króna
House of Fraser - 5,2 milljarðar króna
Whittard of Chelsea - 2,7 milljarðar króna