09. des. 2009 - 19:05
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, prófessor við Háskóla Íslands, segist hissa á fundi Jóhannesar í Bónus með rektor Háskólans í dag. Tilefnið var krafa Jóhannesar um að Hannesi verði vikið úr starfi. Hannes segir að Bónusfeðgar reyni að þagga niður í gagnrýnendum sínum með hótunum.
Eins og Pressan hefur skýrt frá fundaði Jóhannes Jónsson, oftast kenndur við Bónus, með Kristínu Ingólfsdóttur, rektor Háskóla Íslands í dag. Tilefnið var grein Hannesar hér á Pressunni og myndbirting þar með og í kjölfarið sagðist Jóhannes vilja að Hannes yrði rekinn úr starfi fyrir að niðurlægja fjölskyldu sína.
Í samtali við Pressuna segist Hannes Hólmsteinn undrandi á fundinum.
„Ég er mjög hissa á þessu máli. Ég vona, að Prófessorafélagið standi vörð um réttindi og hagsmuni félagsmanna eins og því er ætlað að gera. Háskóli á að vera vettvangur margra ólíkra skoðana. Menn eiga að geta rætt þar af hispursleysi. Menn eiga þar að njóta akademísks frelsis.“
Hann segir að „stórkostlegur“ glæpur sinn sé að gera það sama og margir samkennarar hans hafi gert fyrr og síðar.
„Það er að prenta út af netinu gamanmyndir eða greinar og sýna nokkrum samkennurum sínum í kaffistofunni í Odda. Ég man ekki eftir, að nokkur hafi nokkurn tíma gert neina rellu út af þessu. Til dæmis hafa samkennarar mínir oft prentað út alls konar gagnrýni og jafnvel harðar ádeilur á Davíð Oddsson og sýnt mér og öðrum samkennurum sínum sigri hrósandi. Þetta er fjöður, sem verður að fimm hænum.“
Hann segir að sér finnist umrædd mynd af tengslum nokkurra trúnaðarmanna Arion banka við þá Jón Ásgeir og Jóhannes í Bónus afar fróðleg. Hún eigi erindi til allra.
„Jóhannes í Bónus hefur líka lýst yfir því að hann hyggist reyna að fá mig rekinn úr háskólanum. Eiga þessir menn í Bónus að hindra frjálsa skoðanamyndun í landinu eftir að þeir hafa komið íslensku bönkunum á hliðina? Þeir Bónusfeðgar skulduðu um eitt þúsund milljarða í bönkunum þegar mestur völlur var á þeim! Eitt þúsund milljarða! Og síðan reyna þeir að þagga niður í gagnrýnendum sínum með hótunum.
Háskólinn má ekki taka þátt í þessum ljóta leik. Hann má ekki láta auðmenn, eða hugsanlega fyrrverandi auðmenn, koma í veg fyrir frjálsa skoðanamyndun. Jóhannes í Bónus reynir ekki aðeins auglýsingabann við óþæga fjölmiðla, heldur líka skoðanakúgun í Háskólanum. Hvenær linnir þessum látum?“