<< Til Baka Senda á Facebook

Bakkavör

Vísir, 20. maí. 2009 08:25

Íslendingar stýra Bakkavörmynd

Sjálfkjörið er í stjórn Bakkavarar Group, sem tekur við á næsta aðalfundi félagsins á miðvikudag. Í framboði eru Bakkavararbræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir, Ásgeir Thoroddsen, Hildur Árnadóttir og Katrín Pétursdóttir.
Samþykktir Bakkavarar kveða á um að stjórnarmenn geti verið átta hið mesta.
Dionysos A. Liveras, framkvæmdastjóri breska matvælafyrirtækisins Laurens Patisserie, gefur ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Hann kom inn í stjórnin árið 2007. Þar með situr enginn útlendingur eftir í stjórn Bakkavarar Group.- jab


Kauphöllin hefur ákveðið að áminna Bakkavör opinberlega og beita félagið févíti að fjárhæð 1,5 milljón kr. fyrir brot á reglum Kauphallarinnar.

Í tilkynningu um málið segir m.a. að þann 15. maí sl. var tilkynnt að Bakkavör gæti ekki staðið skil á gjalddaga skuldabréfaflokksins BAKK 03 1 þann sama dag.

Út frá samskiptum félagsins við Kauphöllina telur Kauphöllin ljóst að félagið hafi haft vitneskju um að ekki yrðu staðin skil á gjalddaga skuldabréfsins þann 15. maí sl. og því hafi Bakkavör borið að birta opinbera tilkynningu um leið og ljóst var að ekki yrði mögulegt að greiða af skuldabréfum útgefanda sem voru í viðskiptum í Kauphöllinni.

Með því brást útgefandi skyldum sínum til að birta upplýsingarnar opinberlega eins fljótt og unnt er í samræmi við reglur Kauphallarinnar en skýrt er tekið fram í reglunum að ákvæðið taki m.a. til þeirra tilvika þar sem dráttur verður á afborgunum höfuðstóls og/eða vaxta af verðbréfum útgefanda.