Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Mbl: þögnin hjá hinum föllnu..

Eyjan, Innlent - mánudagur, 17. ágúst, 2009 - 09:08

Morgunblaðið: Þögnin hjá hinum föllnu íslensku fjármálafurstum er æpandi

landsbankinn3.jpgMorgunblaðið segir í leiðara í dag að það sé rétt sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði í ræðu á Hólum í gær, að til þess að íslenzka þjóðin komist út úr kreppunni með sem minnst ör á sálinni þurfi einhverjir að iðrast, allir að fyrirgefa og sannleikurinn þurfi að koma fram, þótt hann kunni að vera ófagur og sársaukafullur.

Blaðið segir að miðað við það hvernig bankamenn bæði austan hafs og vestan hafi talað, t.d. í yfirheyrslum hjá þingnefndum, sé þögnin hjá hinum föllnu íslenzku fjármálajöfrum æpandi. Það sem frá þeim heyrist sé fremur réttlætingar á gjörðum þeirra en afsökunarbeiðni eða iðrun.

Í leiðaranum segir að það komi  betur og betur í ljós, eftir því sem meiri upplýsingar birtist um stöðu bankanna fyrir hrun, að of mikil áhætta hafi verið tekin í rekstri þeirra. Farið hafi verið út á yztu mörk þess sem var löglegt og leyfilegt og her lögfræðinga hafður í því að láta ofurflókna viðskiptagjörninga passa í ramma laga og reglna. Í einhverjum tilvikum leiki grunur á að farið hafi verið út fyrir þann ramma.

Blaðið telur að margir taki undir þau orð Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra á Hólahátíð í gær að rétt væri að „allir þeir sem mesta ábyrgð bera á hruni bankanna, ekki síst Landsbankans, bæðu þjóðina afsökunar á því mikla tjóni sem þeir hafa valdið“.

Þá segir blaðið að það sé sömuleiðis rétt hjá fjármálaráðherra að sú kynslóð, sem nú er ráðandi í landinu, þurfi öll að taka höndum saman og leggjast á eitt um að byggja upp landið til þess að kynslóðir framtíðarinnar geti fyrirgefið þau mistök sem leiddu þjóðina í ógöngur sem vonandi séu aðeins tímabundnar.