Hvítbók.is

Sendið ábendingar á hvitbok@hvitbok.vg

Brottfluttir
1.1.-1.5.09 5105
Atvinnulausir
Í dag 15,825
<< Til Baka Senda á Facebook

Ferrari kaup

Miðvikudagur 23. september 2009 kl 09:45

Höfundur: Ritstjórn DV (ritstjorn@dv.is)

Nánar um málið í DV í dag.

„Það er útrásarvíkingur að kaupa bílinn en ég get ekki nafngreint hann,“ segir Guðlaugur B. Ásgeirsson, sem rekur bílasöluna bill.is. DV greindi frá því í gær að bílasalan hefði til sölu 550 hestafla Ferrari og var verðmiðinn upp á litlar 59 milljónir króna. Að sögn Guðlaugs kaupir útrásarvíkingurinn ónefndi bílinn á 55 milljónir króna.

Þegar DV hafði samband við Guðlaug sagðist hann vera staddur í borginni Frankfurt í Þýskalandi að ganga frá sölunni. Frankfurt er einungis 150 kílómetra frá Lúxemborg en Guðlaugur segir að kaupandi sé búsettur á meginlandi Evrópu. Þeir sem helst koma því til greina sem líklegir kaupendur eru Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi Kaupþingsforstjóri, Skúli Þorvaldsson athafnamaður og Jóhannes Kristinsson, fyrrverandi eigandi Fons, en þeir eru allir búsettir í Lúxemborg. Einnig er Ólafur Ólafsson, oft kenndur við Samskip, líklegur kandídat en hann býr í Sviss.